Fyrir uppsetningu á þessari varmadælu þarf að lágmarki eftirfarandi fylgihluti:
FU8089050 Rör 3 metrar lámarkslengd
FU8093890 Púðar 1 sett
FU809382 Veggfesting 1 sett
341.548kr.
Nordic Slim Inverter KMCDN er enn frekari þróun á hinni vinsælu LECAN varmadælu frá Fujitsu. Þetta er mjög hljóðlát varmadæla sem gefur stöðugt hitastig þar sem innihlutinn hefur mjög skilvirka dreifingu á bæði hita og kælingu. KMCDN hefur það svo umfram KMCBN að í henni er innbyggt WiFi.
KMCDN er sérstaklega hönnuð fyrir norrænar slóðir og hefur mjög góða varmaupptöku við allt að -30 ° C. KMCDN er búin sérstöku afhríminga prógrammi með fjórum mismunandi afhríminga viðmiðum, þetta bætir enn frekar orkunýtingu vélarinnar. KMCDN er áreiðanleg og sparneytin. Örugg fjárfesting sem bæði dregur úr orkunotkun og eykur þægindi.
Með einum takka á fjarstýringunni er hægt að stilla innihitastigið á + 10 ° C og spara þannig orku þegar ekki er verið að nota húsnæðið.
Innihluti KMCDN er aðeins 268×840 mm á stærð, sem gerir mjög auðvelt að setja hann upp í allar gerðir húsnæðis. Eining auðveldar það uppsetningu þegar verið er að endurnýja eldri varmadælur.
Við mælum með þessari í rými sem er 10-110 m²
Til á lager