HREINGERNINGAEFNI FYRIR LOFT Í LOFT VARMADÆLUR og annan loftræstibúnað.
Clinex A / C er mjög virkt hreinsispray fyrir innri og ytri hreinsun, má nota á allar tegundir loft í loft varmadæla, jafnt innan sem utanhús.
Efnið er auðvelt í notkun, leysir upp fitu og fjarlægir ryk og óhreinindi án þess að skaða umhverfið.
Úðabrúsinn inniheldur 650 ml og nægir til að hreinsa innihlutann ca. tvisvar. Hreinsiefnið inniheldur minna en 5% af ójónískum yfirborðsvirkum efnum.
Fimm einföld skref við notkun.
1. Slökkvið á varmadælunni.
2. Fjarlægið síur til að auðvelda aðgengi að elementi og öðrum búnaði.
3. Hristið brúsann og úðið, látið efnið vinna í u.þ.b. 15 mínútur.
4. Skolið vandlega með vatni, gott að nota úðabrúsa.
Þá er mælt með því að varmadælan sé keyrð á kaldri stillingu í 30-60 mínútur þannig að hreinsunin verði enn betri.
5. Ræstið varmadæluna aftur. Endurtaktu hreinsunina a.m.k. einu sinni á ári.
Við erum komin með nýja síðu. Ef þú áttir aðgang hjá okkur áður smelltu á týnt lykilorð hér að neðan og þú færð sent á netfangið þitt hlekk þar sem þú getur síðan breytt lykilorðinu þínu.
Sending...
Vafrakökur
Vefurinn okkar notar fótspor (e. vafrakökur, cookies) fyrir nauðsynlegrar virkni hennar og til að safna tölfræðigögnum í þeim tilgangi að gera síðuna okkar enn betri.